Bóka hótel

Ferðaskrifstofa Akureyrar

Ferðaskrifstofa Akureyrar hefur starfað í núverandi mynd frá árinu 2002 en saga ferðaskrifstofurekstrar undir þessu nafni spannar um sex áratugi. Hjá

Ferðaskrifstofa Akureyrar

Ferðaskrifstofa Akureyrar hefur starfað í núverandi mynd frá árinu 2002 en saga ferðaskrifstofurekstrar undir þessu nafni spannar um sex áratugi. Hjá fyrirtækinu eru fjögur stöðugildi.



Ferðaskrifstofa Akureyrar er sjálfstætt rekin ferðaskrifstofa sem leggur áherslu á almenna ferðaskrifstofustarfsemi. Fyrirtækið hefur Iata-ferðaskrifstofuleyfi sem veitir aðgang að bókunarkerfum flugfélaga og rétt til að bóka og gefa út farmiða á flugfélög vítt og breitt um heim.



Ferðaskrifstofa Akureyrar veitir viðskiptavinum sínum ráðgjöf um bestu leiðir í ferðalögum, hvort heldur um er að ræða val á sumardvalarstöðum eða skipulag lengri sem styttri ferða. Farmiðasala og skipulag ferða einstaklinga eða hópa er stór þáttur í daglegu starfi ferðaskrifstofunnar, bæði innanlands sem erlendis. Þjónusta við fyrirtæki og stofnanir vegna viðskiptaferða erlendis er einnig meðal daglegra verkefna auk þess sem Ferðaskrifstofa Akureyrar skipuleggur ferðir til Akureyrar og annast skipulag funda og ráðstefna á Akureyri.

Hafið samband - sendið okkur fyrirspurnir á aktravel@aktravel.is og ferðalagið hefst!

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf