Bóka hótel

Ferðaskrifstofa Akureyrar

Við mælum sérstaklega með Lalandia, stærsta sumarleyfisstað á Norðurlöndum. Lalandia er frábær sumarhúsa - og fjölskyldugarður á Lálandi í Danmörku,

Lalandia á Lálandi og við Legoland í Danmörku

Við mælum sérstaklega með Lalandia, stærsta sumarleyfisstað á Norðurlöndum. Lalandia er frábær sumarhúsa - og fjölskyldugarður á Lálandi í Danmörku, aðeins 1 1/2 klst. aksturfjarlægð frá Kaupmannahöfn. Lalandia stendur við bæinn Rödby á Lálandi, þar sem ferja fer yfir til Putgarten í Þýskalandi og er stærsti sumarleyfisstaður Danmerkur. Lalandia er þó ekki bara sumarleyfisstaður því þar er alltaf opið. Sumarbústaðirnir eru útbúnir sem heilsárshús og eru í boði þriggja til átta manna bústaðir. Þeir eru notalegir, með þægilegri og rúmgóðri innréttingu í skandinavískum stíl.

Lalandia er sannkölluð paradís fyrir fjölskylduna. Þar eru þarfir barna í algerum forgangi og mikið lagt upp úr því að vel fari um foreldra líka. Í sundparadísinni Badeland ríkir suðurhafsstemning árið um kring. Lofthitinn þar er nefnilega 30 gráður allt árið og vatnshitinn 28. Að sjálfsögðu er hægt að fara á ströndina þegar vel viðrar eða njóta návistar við hafið í góðum gönguferðum. Á staðnum er einnig níu holu gólfvöllur. Þar er minigolfvöllur innanhúss, líkamsræktarstöð og keilumiðstöð. Yfir vetrartímann er svo hægt að fara á skauta á útiskautasvelli. Veitingarstðirnir eru nokkrir og þar, sem annars staðar, er lagt upp úr því að vel fari um börnin.

Frá Lalandia er auðvelt að bregða sér í skoðunarferðir á fjölmarga áhugaverða og skemmtilega staði. Nefna má safarígarðinn Knuthenborg sem er sá stærsti sinnar tegundar í Evrópu og skemmtigarðinn Bon-bon land

Afþreying

Í Lalandia færðu tækifæri til að stunda þína uppáhaldsíþrótt undir berum himni. Hægt er að byrja á tennisvellinum og fara svo í skemmtilega fjölskyldukeppni á minigolfvellinum. Á boltavöllum er hægt að stunda knattspyrnu, strandblak eða handbolta.
Skautasvellið er afar vinsælt frá morgni til kvölds frá miðjum oktober til marsloka, með notalegu andrúmslofti og upplýstu svelli. Í apríllok er svellinu breytt í 400 fermetra leikvöll. Þar er til dæmis að finna öflugt trampólín sem þeytir manni í háaloft. Golfvöllurinn er mjög fallegur og ekki spillir fyrir að fara hring í golfi á honum.
Á Lalandia-golfvellinum er nóg að koma og greiða vallargjald, engin krafa er gerð um að fólk sé í golfklúbbi. Allir eru velkomnir á þennan níu holu golfvöll þar sem er að finna æfingabrautir, æfingaflatir og púttflöt. Hægt er að leigja þann útbúnað sem til  þarf.  Í boði er golfkennsla einu sinni til tvisvar í viku svo byrjendur geta náð tökum á íþróttinni.

 Í aðeins 200 m fjarlægð frá Lalandia er hægt að njóta náttúrunnar á varnargarðinum og meðfram ströndum Eystrasalts. Bláa ESB-veifan sannar að þar syndir fólk í hressandi hreinu vatni. Ef þú ert fyrir hjólaskauta hentar malbikað stígakerfið frábærlega. Einnig er hægt að leigja hjól í nágrenninu.
Í Sport & Bowling er hægt að kaupa veiðileyfi. Þar skárir fólk sig einnig í viðburði, leigir búnað og fær frekari upplýsingar hjá íþróttafólkinu.

Afþreying úti

  • Boltaleikir
  • 1 knattspyrnuvöllur
  • 5 tennisvellir
  • Körfubolti
  • Handbolti
  • Minigolf (18 holur)
  • Strandblak
  • Petanque (4 brautir)

Einngi er boðið upp á klæðskerasniðnar dagskrár fyrir hópa (minnst 10). Í felst t.d. kanókappróður á Eystrasalti, körtuakstur í Røby havn (3 km frá Lalandia), bjórkassastöflun, bogfimi, boðhlaup í skíðagöngu, reiptog o.s.frv. Leitið tilboða í síma (+45) 5461 0522.

Bogagöngin eru stór og með þaki og þar er nóg við að vera. Sama á við um íþróttahöllina  þar er allt það að finna sem þarf til að þjálfa sig, bæði sér til skemmtunar eða fyrir alvöruþjálfun, t.d. í bogfimi, badminton, mini-tennis og alvöru tennis. Í líkamsræktarmiðstöðinni er ekki bara að finna nýtískulegan ,TechnoGym, búnað sem vekur athygli og löngun til að komast í gott form útsýnið yfir Eystrasalt hvetur fólk líka til dáða við æfingarnar.
Vinsælt er hjá fjölskyldum að hittast á átján holu minigolfvellinum innanhúss. Það er líka líf og fjör við hinar átta keilubrautir. Yngstu börnin geta líka verið með vegna þess að hægt er að setja upp hliðarkanta þannig að allir geta náð fellu í Lalandia.
Lalandia býður upp á mikla möguleika fyrir æfingabúðir hópa sem þjálfa handbolta, badminton, knattspyrnu, tennis, körfubolta, blak og fleiri íþróttir. Æfingabúðir og notalegar samverustundir geta verið frábær byrjun á keppnistímabili eða verðskulduð umbun fyrir vel unnin störf.

Afþreying inni

  • 17.000 fermetrar  undir einu þaki
  • 6 badmintonvellir,
  • körfuboltavellir,
  • blak,
  • knattspyrna,
  • handbolti,
  • tennis o.s.frv.
  • 3 borðtennisborð.
  • 8 keilubrautir. (Ath bókið með góðum fyrirvara)

 Sérstaklega fyrir börnin

  • Monky Tonky

Monky Tonky Land er nefnt í höfuðið á lukkudýri Lalandia, Monky Tonky. Honum þykir mjög vænt um börn og hefur innréttað heilt hús með alls konar dóti sem krökkum þykir gaman að leika sér að. Klifurkastalinn er til dæmis svo vinsæll að þaðan fer enginn ótilneyddur nema kannski til að renna sér niður í kúlupottinn eða fara inn í risastóra boltaherbergið. Í Lego®-stofunni fær hugmyndaflugið að njóta sín þegar byggt er að vild úr þeim þúsundum Lego®-kubba sem þar er að finna.
Monky Tonky kemur einnig við sögu utandyra. Hann birtist til dæmis oft við indíánabúðirnar þar sem hægt er að baka brauð á grein og láta aðstoðarfólk Monky Tonky mála sig. Sumir vinna sér einnig inn Monky Tonky verðlaun fyrir að finna 15 gullklumpa við gullþvott.
Ef þér finnst gaman að aka hratt er Mooncar-brautin örugglega eitthvað fyrir þig.
Þeir sem búa á Lalandia þurfa ekki að borga fyrir aðstöðuna í Monky Tonky Land. Vikulega er boðið upp á andlitsmálun og nammigerð. Inni eru svo tússpennar og allt til að teikna, risastór LEGO®-stofa,stór kúlupottur og rennibrautir, mini-billjarð, Nintendo 64, klifur- og hoppukastali innanhúss.
Moon-cars er sérstök braut þar sem hægt er að aka hratt svo er einnig trampólín, klifurveggur, púðasalur, rennibrautir og indíánabúðir. 
Mestu athyglina fá þó dverggeiturnar og kiðin þeirra sen eiga heima í bjálkakofa á miðju stóru túni. Þær bíða eftir því að þú komir í heimsókn, klappir þeim og gefir þeim brauð og fleira góðgæti.

Sundparadísin Aquadome

Aquadome Rödby er ein stærsta sundparadís Danmerkur. Þar ríkir suðurhafsstemming árið um kring,  28°C vatnshiti og 30°C lofthiti.
Hér er nóg af öllu fyrir þá sem dýrka vatnaparadís eins og hún gerist best. Villtar vatnsrennibrautir, brekkur, krappar beygjur, gusugangur í laugunum - eða bara lygnar laugar fyrir þá sem það kjósa. Pálmar, ljós, fossar og landslag mynda suðræna stemningu, jafnt fyrir börnin sem fullorðna. Hér er hægt að á leiðsögn í sundfimi.
Þeir fullorðnu sem vilja njóta afslöppunar og góðra veitinga hafa úr nógu að velja og af 400 fermetra veitingapalli er útsýnið bæði innan húss og út yfir Eystrasaltið hreint stórkostlegt.
Sundparadísin Aquadome er staður til að láta sér líða vel, hvort sem er í vatni eða á þurru landi. Fjölskylda og vinir safnast oft saman ofan í notalegum freyðipottum eftir góðan sundsprett í stóru laugunum þar sem auðvelt er að synda eins og hverjum hentar. 

Fyrir börnin eru möguleikarnir nánast óendanlegir. Barnagæsla er í boði á svæðinu og barnasvæðið er sannkölluð paradís fyrir fjölskyldur með lítil börn. Þar geta minnstu börnin leikið sér með skemmtileg leikdýr í friði og ró. Baðvatnið er hæfilega heitt, 34°C, og nóg rými er til að sinna börnum. Hægt er að sinna þeim yngstu í sameiginlegri umönnun í litríkum bílbaðkörum og á til þess gerðum borðum. Skipt er um vatn 12 sinnum á klukkustund í barnalauginni  Nýja barnasvæðið er út af fyrir sig en þó það nálægt vatnsrennibrautunum að eldri börnin er fljót að læra að rata á milli staða.

Baðsvæði eru alltaf undir eftirliti baðvarða. Að öðru leyti eru allar kröfur um öryggismál á baðstöðum uppfylltar

  • Loftræsting skilar 85.000 m3 á klst.
  • Aquadome tekur 1,1 milljónir lítra af vatni
  • Allar laugar eru búnar vatnshreinsikerfi

Ef þú vilt halda óvenjulegt teiti er hægt að leigja Aquadome á kvöldin frá kl. 22:00 til 01:00. Rými fyrir 50 til 500 manns. Boðið er upp á spennandi drykki, andrúmsloft eins og á Hawaii, stórt ávaxtaborð og fjölbreytt skemmtiatriði á sanngjörnu verði. Leitið tilboða í síma (+45) 5461 0522.

Þeir sem búa á Lalandia fá ókeypis aðgang að Aquadome.

Aquadome er opið kl. 10.00 - 20.00.
Anddyrinu er lokað kl. 19.00. Kallað er upp úr kl. 19.30.

Aquadome

  • 2 buslulaugar
  • 25 sm djúp með leikföngum og litlum vatnsrennibrautum, 34°C
  • 3 stórar laugar
  • Ein laug með bylgjum
  • 400 m2 veitingapallur með borðum og stólum og útsýni yfir Eystrasalt
  • Lónið
  • Drykkir og hanastélsbar (stundum opið)
  • 4 stórar vatnsrennibrautir
  • 76 m fjallabraut
  • 65 m braut með ljósum
  • 52 m hraðbraut
  • 35 m barnabraut
  • 4 heitir pottar 37°C
  • Vatnsfimi fyrir unga og aldna
  • Sóltorgið
  • 9 sólbaðsstofur
  • 3 gufuböð
  • Textílgufuböð
  • Oasen - Matsölustaður Aquadome
  • Aquadome er reyklaust svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf