Þeir sem líta
til framtíðar, vita að tungumálakunnátta getur skipt sköpum í námi og starfi. Ekkert jafnast á við að læra tungumáli
í landi þar sem það er talað og um leið gefst gott tækifæri að kynnast fólki allstaðar úr heiminum. Með beinum tengslum
við líf fólks og menningu lærir þú að nota málið á réttan hátt.
Ferðaskrifstofa Akureyrar er í samstarfi við málaskóla í Bretlandi, Möltu, Spáni og Þýskalandi, þar sem nútímalegar kennsluaðferðir tryggja góðan árangur og ánægjulega dvöl.
Ferðaskrifstofa Akureyrar leggur áherslu á persónulega þjónustu sem tryggir að allir geta fundið nám við hæfi, óháð aldri eða menntun. Valmöguleikarnir eru í raun ótæmandi, en með sérhæfðri þjónustu og nánu samstarfi sjáum við til þess að þú finnir málanám sniðið að þínum þörfum.
Málaskólar eru fyrir alla og brottfarir eru allt árið um kring, bæði fyrir byrjendur og lengra komna.


