Bóka hótel

Ferðaskrifstofa Akureyrar

Akureyri og Eyjafjarðarsvæðið er tilvalinn staður fyrir fundinn eða ráðstefnuna. Ferðaskrifstofa Akureyrar tekur að sér skipulag ráðstefnuhalds á svæðinu

Ráðstefnur

Akureyri og Eyjafjarðarsvæðið er tilvalinn staður fyrir fundinn eða ráðstefnuna. Ferðaskrifstofa Akureyrar tekur að sér skipulag ráðstefnuhalds á svæðinu og umsjón meðan á ráðstefnunni stendur.

Í ráðstefnuþjónustu okkar felast allir þeir þættir sem ráðstefnuhaldari óskar eftir. Þar getur verið um að ræða t.d. bókun á flugi bæði innanlands og utan, bókun á gistingu, ráðgjöf og bókun á ráðstefnuhúsnæði, umsjón með kaupum á veitingum á meðan á ráðstefnunni stendur, umsjón með hátíðarkvöldverði, skipulagi skoðunarferða og fleira mætti telja.

Fjölbreyttir möguleikar eru í boði í funda- og ráðstefnuhúsnæði á
Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu, allt frá minni sölum upp í húsnæði
sem rúmar nokkur hundruð þátttakendur.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf