Bóka hótel

Ferðaskrifstofa Akureyrar

Don Quijote Barcelona Don Quijote Barcelona Barcelona sem er önnur stærsta borg Spánar e. Við Barcelona er Costa Brava ströndin og stutt er á skíðasvæðin

Spænska

Don Quijote Barcelona

Don Quijote Barcelona
Barcelona sem er önnur stærsta borg Spánar e. Við Barcelona er Costa Brava ströndin og stutt er á skíðasvæðin í Pyreníafjöllum.
Í Barcelona er mjög alþjóðlegt mannlíf, mikið um listir, líflegt götulíf og öflugt næturlíf. Á haustin er mikið um tónlistarviðburði, götuleikhús og íþróttaviðburði.

Skólinn er staðsettur í hjarta borgarinnar, í 5 hæða byggingu með 65 skólastofum. Innan skólans er kaffistofa þar sem þú getur hitt aðra nemendur, lesið dagblöðin eða unnið heimaverkefnin.

Námskeið
Intensive námskeið, 20 kennslustundir á viku í spænsku plús 5 kennslustundir á viku um menningu landsins.  – Fyrir byrjendur jafnt sem lengra koma.
Super Intensive námskeið, 30 kennslustundur á viku í spænsku plús 5 kennslustundir á viku um menningu landsins. – Fyrir byrjendur jafnt sem lengra koma.
Spanish for life, námskeið í 12 vikur eða lengur– Fyrir byrjendur jafnt sem lengra koma.
Einkatímar– Fyrir byrjendur jafnt sem lengra koma.
Skólinn býður einnig námskeið  fyrir 50 ára og eldri.

Gisting
Nemendur geta valið um að búa hjá fjölskyldum eða í íbúð með öðrum nemum.
Í Barcelona og Granada geta nemendur einnig dvalið á heimavist skólans.

Fjölskyldurnar eru sérstaklega valdar af Don Quijote og hafa flestar verið hjá skólanum í mörg ár. "Fjölskylda" getur verið hjón með börn eða jafnvel ein manneskja á heimili. Með því að búa hjá dæmigerðri spænskri fjölskyldu upplifir þú spænska menningu enn frekar og nærð fyrr tökum á tungumálinu.

Ef þú velur "Student Flat" eða íbúð með öðrum nemum deilir þú íbúð með 4-5 Don Quijote nemum. Þessar íbúðir eru mjög látlausar en þú færð alltaf rúm, skrifborð, stól og fataskáp. Í hverri íbúð er setustofa þar sem er sjónvarp, eldhús með helstu áhöldum, þvottavél og straujárn. Þú deilir setustofunni, eldhúsinu og baðbergi með nemendum sem eru í íbúðinni.

Heimavistin í Barcelona er alveg við skólann. Á heimavistinni eru 25 herbergi með sér baðherbergi og sjónvarpi. Á heimavistinni er 24 klukkustunda öryggisvörður.

Allir nemendur á heimavistinni hafa aðgang að eldhúsi sem er útbúið helstu áhöldum, ofni, örbylgjuofni, kaffivél og ísskáp. Einnig er setustofa með sjónvarpi, video og svo er þvottavél og þurrkari á staðnum.
Nemendur geta óskað eftir að vera einir í herbergi eða deila herbergi með öðrum nema.
Nemar af sama þjóðerni gista ekki hjá sömu fjölskyldu eða í sama herbergi nema sérstaklega sé óskað eftir því.

Fæði
Nemar sem gista hjá fjölskyldu geta valið um að fá morgunmat, hálft fæði eða fullt fæði. Hálft fæði er morgunmatur og máltíð um klukkan 14:00 eða létt fæði um klukkan 22:00. Fullt fæði er morgunmatur plús 2 máltíðir.
Á heimavist og í íbúð sjá nemendur sjálfir um fæði.

Brottfarir
Öll námskeið byrja á mánudögum og því fljúga flestir út sunnudeginum áður.
Ef þú ert byrjandi í spænsku er 2- 4 brottfarir í hverjum mánuði.
Lágmarks dvalartími er ein vika nema Spanish for life sem er 12 vikur.
Á Intensive námskeiðinu, Super Intensive námskeiðinu, Spanish for life og í einkatímum er engin hámarks dvalarlengd.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf