Bóka hótel

Ferðaskrifstofa Akureyrar

       Paraiso del sol** Ódýrt 2ja lykla (stjörnu) sambyggð smáhýsi eða raðhús á Playa de las Américas um 500 metra frá strönd og í göngufæri við

Tenerife gisting 14.-21.september

      

Paraiso del sol**

Ódýrt 2ja lykla (stjörnu) sambyggð smáhýsi eða raðhús á Playa de las Américas um 500 metra frá strönd og í göngufæri við veitingastaði, verslanir og bari.  Smáhýsin eru 2 hæðir og standa umhverfis snyrtilegan sundlaugargarð með tveimur sundlaugum og barnalaug. Íbúðir á efri hæð eru með svölum og íbúðir á neðri hæð með verönd.
Í garðinu eru einnig sólbekkir, snakkbar, borðtennis og billiard.  Veitingastaðurinn er snyrtilegur með hlaðborði fyrir morgunverð og kvöldverð. Þráðlaust net er í gestamóttöku.

Verð:

Stúdíó               kr.  134.900,- ( á mann miðað við 2 í stúdíó)
Íbúð m/1herb         kr.  137.900,- ( á mann miðað við 2 í íbúð)

aukagjald fyrir einbýli kr. 24.900,-

Innifalið er flug, flugvallarskattar, gisting, ferðir til og frá flugvelli á Tenerife og íslensk fararstjórn

 

Vulcano****

Mjög gott 4 stjörnu hótel á besta stað í hjarta Playa de las Americas.  Það, sem einkennir hótelið er einstaklega falleg gestamóttaka með setustofum þar sem umhverfið minnir á lystigarð. Sundlaugargarðurinn er stór, gróðursæll og með sundlaug, barnalaug og fjölda sólbekkja.
Hótel Vulcano var allt endurnýjað árin 2004 og 2005. Ströndin er um 300 metra frá hótelinu og stutt er að göngugötum með verslunarhúsum og  sérverslunum.  Barir, veitingahús og kaffihús eru á hverju strái og hótelin Villa Cortes, La Siesta og  Parque Santiago eru steinsnar frá hótel Vulcano.
Hótelið býður upp á skemmtidagskrá á hverjum degi fyrir alla aldurshópa. Sundleikfimi  og leikir í lauginni eru á daginn. Fjölbreyttar sýningar eru á kvöldin, einnig lifandi tónlist og dans. Við hótelið er tennisvöllur og einungis 1 km er á golfvöllinn Club de Golf las Américas.
Herbergi eru 365 talsins, mjög  rúmgóð og geta öll rúmað þrjá gesti.  Öll loftkæld,  með síma, sjónvarpi, smábar, öryggishólfi, hárþurrku og svölum eða verönd.
Í aðal veitingasal hótelsins er matur borinn fram á hlaðborði, eins og gjarnan tíðkast á Spáni og á það bæði við um morgun- og kvöldverð.  Á hótelinu er einnig pianóbar og snakkbar við sundlaugina.
Hótel Vulcano er einstaklega góður kostur á sanngjörnu verði og hafa gestir verið hæstánægðir þar í gegnum tíðina.
sjá nánar http//www.hotelvulcano.com 

Verð:
2ja manna herbergi:     kr. 163.500,-
Aukagjald f. einbýli kr. 23.900,-

Innifalið, flug, flugvallarskattar, ferðir til og frá flugvelli, ísl. fararstjórn, gisting í 2ja manna herb, m/hálfu fæði ( morgun og kvöldverði

Bókanir í síma 4600600 eða aktravel@aktravel.is



 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf