Bóka hótel

Ferðaskrifstofa Akureyrar

Starfsfólk Ferðaskrifstofu Akureyrar býr yfir mikilli þekkingu í skipulagi viðskiptaferða og þekkir vel hversu mikilvægt er að vanda vel til undirbúnings

Viðskiptaferðir

Starfsfólk Ferðaskrifstofu Akureyrar býr yfir mikilli þekkingu í skipulagi viðskiptaferða og þekkir vel hversu mikilvægt er að vanda vel til undirbúnings fyrir viðskiptavini. Okkar þjónusta felst í að finna hagstæðustu kjör hverju sinni, bæði hvað snertir flugferðir og gistingu. Við þekkjum af reynslunni að tíminn skiptir máli í viðskptaferðum og þá er mikilvægt að þekkja til flugfélaga og áætlana vítt um heim þannig að sem minnstur tími fari í ferðalög. Vel skipulögð viðskiptaferð skilar bestum árangri.

Í viðskiptavinahópi okkar eru fyrirtæki og stofnanir sem hafa notið okkar þjónustu um áraraðir. Við státum einnig af hópi viðskiptavina erlendis, sem bæði nýta sér þjónustu vegna skipulags viðskiptaferða til Íslands eða annarra landa.

Ferðaskrifstofa Akureyrar hefur aðgang að Amadeus bókunarkerfinu og það gerir okkur kleift að bóka fargjöld með öllum helstu áætlunarflugfélögum í heiminum. Við sjáum einnig um að bóka hótel og bílaleigubíla. Jafnframt bókum við hjá lággjaldaflugfélögum á borð við Iceland Express, Easyjet og öðrum félögum sem eru bókanleg á netinu.

Hægt er að bóka hótelgistingu hér á vefnum. Smellið hér.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf